Af útihátíðum

 

Ólafur Jóhann Borgþórsson, guðfræðingur skrifar

Sumarið hefur verið gott. Í júlímánuði var ég í sumarblíðu í sumarbúðunum að Eiðum og var gaman að hitta þar austfirska krakka sem eru hressir og skemmtilegir með eindæmum. Um verslunarmannahelgina fór ég að sjálfsögðu til Vestmannaeyja á þjóðhátíð og naut þess svo sannarlega enda er þetta ein stærsta og glæsilegasta útihátíð landsins fyrr og síðar. Sagan vitnar um það, hún hefur verið haldin síðan 1874 og má segja að hún hafi alltaf farið stækkandi og glæsileikinn sjaldan verið meiri en nú. Ég hef séð hátíðina bæði með augum lögreglumanns og sem venjulegur gestur og frá báðum hliðum get ég sagt að hátíðleiki er yfir mönnum þessa helgi í Herjólfsdal.

Það er því sorglegt þegar einstaka menn koma fram á ritvöllin með alls kyns yfirlýsingar um hversu hroðalegar útihátíðar í þessu landi eru og ástandið á þeim sé nánast Sódómískt.

Þormóður Dagsson skrifaði grein í Morgunblaðið þann 4. ágúst sl. þar sem hann gerði útihátíðir að umfjölluarefni sínu og segir meðal annars:

,,Ef það er einhvern tíma þörf fyrir her á Íslandi þá er það um þessa helgi enda er nánast hver einasta lögga á landinu á vakt og aukalið í viðbragðsstöðu og allar bíða þær með öndina í hálsinum eftir að ölæðið renni af landsmönnum og þriðjudagurinn gengur í garð.”

Jafnframt segir Þormóður:

Af hverju virðist ekki vera unnt að halda útihátíðir á Íslandi án þess að fólk hreinlega missi vitið?

Ég skil hreinlega ekki þessa hörðu afstöðu Þormóðs í garð útihátíða. Svo ég taki nú fyrir þjóðhátíð, sem ég þekki hvað best til þá er þar jú vissulega öflug löggæsla, en að segja að gæslumenn bíði með öndina í hálsinum eftir að ölæðið renni af landsmönnum er hrein og klár þvæla, enda er það staðreynd að brotin eru jafnvel færri og ekki eins alvarleg eins og oft eru í miðborg Reykjavíkur um hefðbundna helgi. Fíkniefnamál eru vissulega fleiri enda fíkniefnaleit mun víðtækari um verslunarmannahelgina og alls voru tólf slík mál sem komu til kasta lögreglunnar í Vestmannaeyjum. Ein líkamsárás var kærð og ein nauðgun tilkynnt.

Ég er sammála því að best væri að vera laus við allan þennan óþverra en mér þykir það sérstakt að ráðast að útihátíðum þessa einu helgi, fremur en að einbeita sér að vandamálunum í Reykjavík sem virðist vera ríkjandi 52 helgar á ári, því miður. Í þessu samhengi renndi ég yfir mbl.is og sá þar nokkrar fyrirsagnir af verkefnum lögreglunnar í Reykjavík sl. daga og birti hér fyrirsagnirnar til fróðleiks:

Lögregla leitar manns sem ógnaði konu með hnífi og reyndi að nauðga henni (11. 8. 2006).

Margir með áverka eftir slagsmál í nótt (13. 8. 2006).

Tennur slegnar úr manni (14. 8. 2006)

Við Þormóð og skoðanabræður hans vil ég segja; útihátíðir eru ekki slæmar ef vel er staðið að skipulagningu og framkvæmd eins og þjóðhátíðarnefnd hefur gert undanfarin ár – þá er útihátíð sannarlega hátíð og allir í hátíðarskapi!

Greinin er tekin af heimasíðu Ólafs Jóhanns, http://olafur.annall.is/

Deila á facebook