Þá er Maí runnin upp og ekki seinna vænna en að fara að koma þessari síðu í gang aftur. Þjóðhátíðarnefnd er komin á fullt í sinni vinnu í að skipuleggja næsta partý í Herjólfsdal, sem þetta árið verður 3, 4 og 5 Ágúst. Á næstu dögum förum við að koma með fréttir af ráðningum skemmtikrafta, miðaverði í dalinn og hinu og þessu sem tengist hátíðinni, hér inná síðuna.