Á móti sól og Í svörtum fötum koma á Þjóðhátíð

 

Þjóðhátíðarnefnd hefur gengið frá samningum við Á móti sól og Í svörtum fötum um að leika fyrir dansi á Þjóðhátíð í ár. Þessi bönd eru þjóðhátíðargestum að góðu kunn og hafa margsinnis haldið uppi stuðinu í dalnum. Á móti sól með hinn heimsfræga Magna í broddi fylkingar munu spila öll kvöldin í dalnum auk þess sem þeir sjá um að halda uppi stemningu á húkkaraballinu.

Í svörtum fötum munu svo hefja leik á föstudagskvöldinu og halda svo stuðinu áfram á laugardags- og sunnudags- kvöld.

Deila á facebook