
VKB menn hafa útbúið myndband með undirbúningsvinnu þeirra fyrir Þjóðhátíðina 2006. Þarna má sjá þegar þeir félagar viðra risa tjaldið sitt og standsetja Vitann sem er að þeirra sögn lang fallegasta mannvirkið í Dalnum. Helgi Ólafsson forseti félagsins sagði að það er þó margt annað sem þeir gera fyrir Þjóðhátíðina sem ekki kemur fram þarna má þar nefna helst veglegt hefti sem þeir gáfu út, ljósmyndasýning sem var uppi í tjaldinu alla Þjóðhátíðina og sumir þeirra gerðu sér búninga. Stefnan er að vera ennþá flottari í ár sagði Helgi að lokum
Myndbandið má sjá hérna
Við viljum hvetja fólk að nýta sér youtube til að útbúa skemmtileg Þjóðhátíðarmyndbönd og láta okkur vita af þeim.