-Rósabúntið á einnig þjóðhátíðarlagið í ár
Þá er það komið á hreint hverjir verða á tjarnarsviðinu á Þjóðhátíðinni. Það verða sömu bönd og hafa verið þar þrjú síðustu ár, Dans á rósum og Hálft í hvoru.
Bæði þessi bönd slógu rækilega í gegn í fyrra á litla pallinum og gat þjóðhátíðarnefnd ekki annað en samið aftur við þessar frábæru hljómsveitir. Dans á rósum kláraði t.d Þjóðhátíðina í fyrra og spiluðu þeir til að ganga níu á mánudagsmorgun.
Dans á rósum og Hálft í hvoru koma einnig við sögu á kvöldvökunum á brekkusviði. Einnig mun Dans á rósum sjá um að halda börnunum á tánum því að þeir koma til með að sjá um barnadansleikina og hina geisivinsælu söngvakeppni barna, en skráning í söngvakeppnina hefst í byrjun júlí og verður það auglýst nánar þegar nær dregur hér á dalurinn.is.

Þá er rétt að geta þess að Dans á rósum semur og flytur þjóðhátíðarlagið í ár en Heimir Eyvindarson á textann. Nánar verður sagt frá laginu síðar í júní-mánuði.