Sprengjuhölllin mætir í Herjólfsdal

 

Þjóðhátíðarnefnd hefur náð samningum við hljómsveitina Sprengjuhöllina um að þeir spili fyrir þjóðhátíðargesti á komandi hátíð. Hljómsveitin hefur getið sér gott orð undanfarið og hefur vakið mikla athygli fyrir hress og skemmtileg lög auk fjörlegrar sviðsframkomu. Lag þeirra "Verum í sambandi" hefur náð miklum vinsældum á útvarpsstöðvum landsins undanfarnar vikur og því ljóst að strákarnir eiga eftir að vekja mikla lukku þjóðhátíðargesta þegar þeir hefja leik í Dalnum.

Sprengjuhöllin mun leika á Stóra pallinum eftir miðnætti á laugardagskvöldinu að lokinni flugeldasýningu. Þjóðhátíðarnefnd vinnur nú hörðum höndum að því að fullmóta dagskrá hátíðarinnar sem verður glæsileg að vanda. Því er um að gera að fylgjast vel með hér á síðunni þar sem þið fáið þjóðhátíðarfréttirnar beint í æð.

Deila á facebook