Það verður enginn annar en Stefán Hilmarsson sem kemur til með að eiga sviðið á tónleikunum á laugardagskvöldinu á Brekkusviðinu. Stebbi kemur með hóp valinkunnra tónlistamanna með sér og á, án nokkurs vafa eftir að verða mikið stuð á pallinum sem og í brekkunni á laugardagskvöldinu.
Í beinu framhaldi af tónleikunum verður svo hinni mögnuðu flugeldasýningu skotið upp af fjósakletti.