- Munu skemmta á kvöldvöku á föstudagskvöld
Þeir síungu félagar Raggi Bjarna og Þorgeir Ástvaldsson munu mæta á Þjóðhátíð nú í ár. Þeir eru orðnir góðvinir okkar sem komið höfum á hátíðina síðustu ár og miðað við undirtektirnar sem þeir hafa fengið á fyrri hátíðum má búast við miklu fjöri í brekkunni og á pallinum þegar þeir félagar koma fram.
Þeir munu troða upp á kvöldvökunni á föstudagskvöldinu og því um að gera fyrir alla sem ætla sér að koma á Þjóðhátíð að vera tilbúnir með Tweed-jakkana og lakkskóna því öruggt er að þeir Raggi og Þorgeir munu hrista ærlega upp í Þjóðhátíðargestum í Herjólfsdal.
Fylgist áfram með á dalurinn.is því þar fáið þið fréttir af Þjóðhátíð 2007 eins ferskar og hægt er !