Atli Bollason er 22 ára borgarbarn og er einn af sex meðlimum Sprengjuhallarinnar. Hann spilar á hljómborð ásamt því að syngja en allir meðlimir eru það söngelskir að þeir ljá rödd sína málstaðnum. Sprengjuhöllin vakti mikla athygli fyrr í vor með hinu geysivinsæla lagi Verum í sambandi. Sprengjuhöllin mun spila strax eftir flugeldasýninguna á laugardeginum á Þjóðhátíðinni. Ég ákvað að heyra aðeins í Atla til að fá að vita eitthvað meira um þessa hljómsveit.
Sæll Atli, heyrðu það liggur beinast við að spyrja fyrst að því hvort að maðurinn hafi einhverntíman komið til Eyja?
Ég hef komið til Eyja áður í tvígang til að spila tónlist, og allavega einusinni í frí. Fyrir ca. tíu árum spilaði ég í safnaðarheimili kirkjunnar með bjöllukór Bústaðakirkju, og það fór nú ekki betur en svo að einhverjar ljúfar konur dældu svo miklu gosi í okkur fyrir tónleikana að ég endaði á því að væta gólfið í safnaðarheimilinu. Þetta fór aðeins betur þegar Sprengjuhöllin lék á Prófastinum í apríl, en núna vonast ég til að slá fyrri afrek út.
Ég hef hins vegar aldrei sótt þjóðhátið áður og sannast sagna er ég nokkuð smeykur við að fara. Ég er hræddur um Árni Johnsen muni kýla okkur í smettið og að það fari jafnvel að gjósa.
Já er þá Þjóðhátíð eitthvað sem heillar fyrir hljómsveitir eins og Sprengjuhöllina?
Er þjóðhátíð ekki stærsta og besta útihátíð á landinu? Svo segir allavega fólk sem hefur farið, svo jú, þetta heillar okkur vissulega.
Þetta verða án efa svolítið öðruvísi tónleikar en við höfum spilað á hingað til og ég hlakka allavega til svona fyrir mitt leyti.
Hvenær og hvernig byrjaði hljómsveitin og af hverju nafnið Sprengjuhöllin?
Hljómsveitin á rætur að rekja til ársins 2004, en kom fyrst fram í núverandi mynd í apríl í fyrra. Ég var síðastur til að ganga til liðs við bandið og þá var búið að festa nafnið kyrfilega. Mér skilst að þetta sé vísun í Einar Ben sem ræddi um Stjörnuhöllina í kvæðinu Útsær. Sprengjuhöllin er eitthvað sem er enn rosalegra en Stjörnuhöll.
Er plata væntanleg frá ykkur?
Já, við erum að æfa stíft undir upptökur sem munu fara fram í júlí og ágúst. Við erum fyrir vikið að spila mjög lítið og gerum sérstaka undantekningu til að heilsa upp á Eyjapeyja og píur um verslunarmannahelgina. Platan ætti síðan að koma út í september eða október.
Nú eru þið þekktir fyrir fjörlega sviðsframkomu eiga hátíðargestir von á flottri sýningu?
Við leggjum mikið uppúr því að skemmta sjálfum okkur, því við trúum því að með því að skemmta sjálfum okkur skemmtum við áhorfendum. Ég held að þetta sé regla sem klikki aldrei - svo jú, hátíðargestir geta átt von á miklu stuði.
Þetta er nú undarlegur bransi þessi tónleika og músíkbransi, lumaru á einhverri góðri sögu af þér og eða hljómsveitinni?
Það er helst sagan af því þegar ég meig á mig í Vestmannaeyjum með bjöllukórnum. Það er nógu langt síðan til að ég þori að segja hana.
Heyrðu í mér aftur eftir tíu ár og þá skal ég segja þér sögur frá þessum tíma.
Myndiru skilgreina ykkur sem alvöru tónleikahljómsveit eða væru þið á sveitaballarúntinum ef sá rúntur væri ennþá?
Við erum með meðvituðum hætti að reyna að brúa bilið milli aðgreiningar í háa og lága lágmenningu, ef það má orða það svoleiðis.
Við viljum fá fólk til að skemmta sér og hafa gaman, en við viljum líka hafa gaman sjálfir. Þetta má ekki verða eitthvað næn tú fæv komma alltof stór jakkaföt og sósublettur á bindinu-dæmi. Við erum að þessu því við elskum popptónlist, og það er einmitt einkenni á góðri tónlist að hún skemmtir fólki eða snertir það með einhverjum hætti.
Takk fyrir og sjáumst á þjóðhátíðinni.
minni einnig á að Sprengjuhöllin er með síðu á myspace. http://www.myspace.com/sprengjuhollin