Textinn við þjóðhátíðarlagið

 

Hér kemur textinn við nýja þjóðhátíðarlagið. Einnig er hægt að sjá gítargripin undir "Textar þjóðhátíðarlaga".

Stund með þér

Líður að kveldi ég læðist til þín

Logarnir liðast og vindur hvín

Stjörnur á himni ég stari í þær

Færi mig nær

Eldarnir loga þó allt verði hljótt

ástin sem vakir jafnt dag sem nótt

hvað sem ég geri hvert sem ég fer

ég hef þig í huga mér

Og ég spyr þig viltu eiga stund með mér

Ágústnótt í dalnum og ég er fallinn fyrir þér

Tímarnir breytast og mennirnir með

Dagarnir líða, allt getur skeð

Samt held ég vina ég viti um eitt

Sem ekkert fær breytt

Þig mun ég elska, þig mun ég þrá

Þar til að endingu allt er frá

Þá hafa gengið um æviveg

Ástin mín þú og ég

Og ég spyr þig viltu eiga stund með mér

Ágústnótt í dalnum og ég er fallinn fyrir þér

Sóló

Verð að vita það

Verð að vita viltu eiga stund með mér

Ágústnótt í dalnum og ég er fallinn fyrir

Og ég spyr þig viltu eiga stund með mér

Ágústnótt í dalnum og ég er fallinn fyrir þér

Ég er fallinn fyrir þér

Deila á facebook