Mikið hefur verið um að fólk sé að hanga í gestabókinni hérna hjá okkur á Dalurinn.is og spjalla þar um uppkomandi Þjóðhátíð. Þetta er frekar óhentugur spjallvetvangur og höfum við því brugðist við þessu með því að setja upp spjallborð tileinkað Þjóðhátíðinni. Spjallborðið er sett upp í samvinnu við bræðrafélagið Vini Ketils bónda og er hluti af Haltu Kjafti spjallvefnum, sem þeir halda úti. Þar er nú komið inn sérstakt Þjóðhátíðarspjallborð, efst á forsíðu spjallvefsins, sem öllum er aðgengilegt svo fremi sem þeir skrái sig á vefinn (sem er að sjálfsögðu frítt). Hvetjum við því alla til að drífa sig inn á Haltu Kjafti spjallvefinn og peppa sig og aðra rækilega upp fyrir Þjóðhátíðina!
Framvegis verður svo hægt að smella á aulgýsinguna hérna hægra megin á síðuna sem beinir lesendum beint inn á spjallvefinn.