Forsölu lýkur á miðnætti mánudaginn 30.Júlí

 
Forsalan á þjóðhátíðina gengur mjög vel og er óhætt að segja að miðarnir fljúgi út. Forsalan í ár er í öllum verslunum 10-11 og í Eyjum er hún í Skýlinu. Verið er að vinna í að bæta við sölustöðum á landsbyggðinni og skýrist það væntanlega í dag eða á morgun. Við komum þá með nánari fréttir af því hér á dalurinn.is um leið og það klárt.
Deila á facebook