Jæja nú er allt komið á fullt skrið í Herjólfsdal, ég skrapp niðureftir um átta leytið og þar voru staddar helstu hetjur bæjarins að smella saman Þjóðhátíðinni... Brúin er komin upp og vatnspósturinn auk þess sem það gengur vel með brennuna.
Hægt er að skoða myndir frá því í kvöld á vefslóðinni
http://public.fotki.com/Boggi/2007/jht-2007/19juli/
Við minnum einnig á Þjóðhátíðarspjallið sem er búið að opna inná Haltu kjafti vefnum.. þar er hægt að auglýsa eftir miðum í Herjólf, auglýsa eftir húsnæði eða bara ræða heima og geima um þessa frábæru hátíð.
http://haltukjafti.vinirketils.com/