- undirbúningur í fullum gangi um allt land
Nú eru einungis tólf dagar þar til föstudagurinn 3.ágúst rennur upp en þá verður Þjóðhátíð formlega sett, 133 árum eftir að fyrsta Þjóðhátið í Vestmannaeyjum var haldin. Eins og ávallt er dagskráin glæsileg og mun landslið listamanna koma fram á Þjóðhátíð 2007. En undirbúningur fyrir hátíðina fer ekki einungis fram í Herjólfsdal því gestir hátíðarinnar eru nú á fullu í undirbúningi til að vera tilbúnir fyrir mestu skemmtun ársins.
Bókanir með Herjólfi og flugi hafa verið með mesta móti undanfarna daga og einnig hefur forsala miða gengið vel en hún fer fram í verslunum 10/11 auk þess sem BT á Selfossi og Ísafirði selur miða. Þegar miðar til Eyja og á hátíðina eru klárir þarf að huga að ýmsu öðru. Fyrir þá sem gista í tjöldum þarf auðvitað að athuga hvort þau séu ekki klár fyrir helgina og heimamenn þurfa að viðra hvítu tjöldin sem eiga eftir að hýsa marga gesti á Þjóðhátíð. Hvítu tjöldin eru ómissandi hluti á hverri Þjóðhátíð og ekki skemmir fyrir ef fólk er duglegt að baka kökur og fleira fyrir svanga tjaldgesti.
Bekkjabílarnir eru líkt og hvítu tjöldin ómissandi þáttur á hverri hátíð. Fyrir þá sem ekki þekkja til þá eru bekkjabílarnir á ferð alla hátíðina og flytja gesti í og úr Dalnum gegn vægu gjaldi. Hjá mörgum reyndum þjóðhátíðargestum er ferð í bekkjabíl, þar sem hlustað er á skemmtileg Eyjalög, nauðsynleg til að ná réttu stemmningunni.
Búningar hafa sett skemmtilegan svip á Þjóðhátíð undanfarin ár og verður án efa engin breyting þar á þetta árið. Hinir ýmsu hópar hafa síðan í vetur unnið að undirbúningi búninga sinna með það markmið í huga að standa uppi sem sigurvegari í hinni árlegu búningakeppni Þjóðhátíðar. Hugmyndaflugið hjá þessum hópum er oft ævintýralegt og meðal annars hefur undanfarin ár sést til Lífvarða drottningar, Tennisleikara, Runaway Brides auk eftirminnilegra persóna úr Hringadróttinssögu. Því verður spennandi að sjá hvaða fyrirbæri við sjáum í Dalnum í ár.
Gestir af fastalandinu eru minntir á að vera vel búnir fyrir Þjóðhátíðina því aldrei er að vita hverju veðurguðirnir taka upp á, þó þeir hafi fyrir þónokkru lofað blíðviðri um verslunarmannahelgina. Það mikilvægasta af öllu er þó að allir þjóðhátíðargestir hafi góða skapið með í för því þá er nokkuð ljóst að Þjóðhátíð 2007 verður fullkomin skemmtun fyrir alla sem að henni koma.