Blíða á Þjóðhátíð?

 

Það er alltaf gaman að fylgjast með veðrinu og þá sérstaklega þegar styttist í merkilega viðburði eins og til dæmis Þjóðhátíð... menn keppast við að vera fyrstir með veðurfréttirnar um verslunarmannahelgina og í ár mætti segja að erlend veðursíða hafi vinninginn. Síðan heitir Accuweather.com og spá þeir 2 vikur fram í tímann. Samkvæmt þeirra spá verður bara blíða á Þjóðhátíð í ár sem er nú bara hið besta mál. Að sjálfsögðu er þetta nú meira í gamni en alvöru enda skiptir engu máli hvernig veður er.. það er stemmningin sem skiptir meira máli.

En þeir sem hafa gríðarlegar áhyggjur af þessu geta fylgst með á heimasíðunni hjá þeim á Accuweather.com

Deila á facebook