Toby fylgir Á móti sól á Þjóðhátíð

 

Hljómsveitin Á móti sól mun ásamt Tuborg og Fm957 halda upphitunardjamm fyrir Þjóðhátíð Vestmannaeyja miðvikudaginn 1.ágúst. Partýið er á Gauki á stöng og lofar hljómsveitin mikilli Þjóðhátíðarstemmningu. Sérstakur gestur fylgir drengjunum, en Rockstar hetjan Toby mun spila með þeim á Gauknum ásamt félaga sínum úr hljómsveitinni Jake Kartel.

Sagan segir að Toby hafi nauðsynlega þurft að prófa Þjóðhátíð vegna þess hversu mikið Magni hafi saknað þess að vera ekki á Þjóðhátíð í fyrra en eins og alþjóð veit var hann á fullu í Rockstar keppninni þá. Toby mun því trylla lýðinn með hljómsveitinni Á móti sól á Þjóðhátíð!

Ef fólk er alveg að tapa sér þá getur það byrjað stemmninguna á Gauk á stöng n.k miðvikudag og mætt svo galvösk í Herjólfsdal eftir viku!

Deila á facebook