Veðurblíðan hefur verið mikil í Herjólfsdalnum í gær og í dag og ágætlega vel sótt að hjálpa til þó megi nú alltaf bæta við og hvetjum við fólk að mæta í sólina á morgun að aðstoða. Brennan er öll að verða klár og segir Sindri Ólafs brennupeyji að þessi brenna muni slá öll met í ár. Göturnar eru allar komnar upp og ein ónefnd gata, en Þjóðhátíðarnefnd ákvað að bæta við einni götu í ár vegna þess hve mikið var af hvítu tjöldunum í fyrra og von er á öðru eins í ár.
Undirritaður ákvað að skreppa aðeins upp á fjall og ná nkkrum góðum myndum af hátíðarsvæðinu og má sjá myndirnar á vefslóðinni
http://public.fotki.com/Boggi/2007/jht-2007/28juli/