-Flugfélag Íslands með örfá sæti laus á föstudeginum og fullt í Herjólf!!
![]()
Dalurinn hafði samband við Flugfélag Íslands rétt í þessu og var gríðarlega mikið bókað og vegna fárra sæta þá var farið að bóka töluvert á fimmtudeginum sem og laugardag.
570-3030 beint númer hjá Flugfélaginu til að bóka.
Ljóst þykir að straumurinn liggi til Eyja þetta árið og fólk staðráðið að taka þátt í stærstu og veglegustu útihátíð landsins miðað við bókanir á ferðum.
Herjólfur
Þetta er mjög einfalt hjá Herjólfi: Fimmtudag fullt! Föstudag fullt! Aðfaranótt föstudags er næturferð sem hefur allt að 53 sæti laus svo þetta er alveg að klárast. Sett hefur verið á sérnæturferð aðfaranótt laugardags og er ennþá laust í þá ferð.
Til að komast upp á fastalandið aftur þá er það hægara sagt en gert með skipinu. Allt fullt mán og þriðjudag. Næturferðir einnig. Fullt er fyrir bíla fram að föstudag. Biðlistar eru langir en hægt er að skrá sig og vonast eftir að pláss losni. Símanúmerið hjá Herjólfi er 481-2800 og er hægt að nálgast allar helstu upplýsingar þar sem og á heimasíðu Herjólfs.