Hljómsveitin Á móti sól mun halda upphitun fyrir Þjóðhátíð í Vestmanneyjum miðvikudagskvöldið, 1.ágúst. Söngvarinn Magni fer þar fremstur í flokki en auk hans hyggst Ástralinn Toby Rand úr Rock Star Supernova trylla lýðinn.
Þetta er smá partý sem Tuborg og FM957 eru að halda fyrir Þjóðhátíð.
Þar sem við í hljómsveitinni Á móti sól er um nú lang skóla gengnir þjóðhátíðargestir og skemmtendur er vel við hæfi að við hitum upp fyrir hátíðina með pompi og prakt, sagði Magni Ásgeirsson í samtali við Blaðið í gær. Þegar blaðamaður náði af honum tali naut hann veður blíðunnar í traktor á Borgarfirði eystri, en var í þann mund að halda suður til þess að sækja Toby Rand á völlinn.
Hann á að vera að stíga upp í vélina í þess um töluðu orðum. Ég reyndar bíð eftir því að fíflið hringi í mig eftir klukkutíma og segi að hann hafi misst af vélinni. Hann nefnilega missti af fyrri vélinni sem fór í morgun. Það reyndar hentaði mér ágætlega þar sem ég sit ber að ofan í 25 stiga hita ofan á traktor hérna í sveit inni og hefði ekkert nennt að sækja hann.
Toby Rand spenntur fyrir Eyjum.
Magni segir Toby fullan tilhlökkunar fyrir Þjóðhátíð í Eyjum, en hann hefur lengi falast eftir boði á hátíðina frá Magna.
Ég var búinn að segja Toby mikið frá Þjóðhátíð í Eyjum og hann hef
Þetta verður bara létt og leikandi upp hitunarpartí. Við ætlum ekki að vera of formlegir og höfum til dæmis ekki mikinn tíma til að æfa með Toby. Við mun um því spila bara það sem okkur finnst skemmtilegt án þess að hafa allt of mikið plan að og hafa bara gaman af þessu.
Ef ég þekki okkur og Toby rétt þáspilum við örugglega helling af U2 lögum, þar sem við fílum lögin þeirra mikið, og eins lög úr RockStar og Á móti sól. Svo bara fá um við okkur Tuborg, verðum hressir og spilum allan andskotann. Þetta ætti því ekki að geta klikkað!
Frétt tekin úr Blaðinu