Allt að verða klárt

 

VKB menn komu upp vitanum í gærkveldi við mikinn fögnuð sjálfboðaliða í dalnum. Brennan er tilbúin og er svo stór að enginn kemst yfir hana nema fuglinn fljúgandi. Hofið var klárað í gær þrátt fyrir að menn kunna ekki áttirnar á þeim bænum og viftan, nei ég meina myllan var líka kláruð og er nú allt að verða nokkuð klárt í Herjólfsdal.

Núna eru menn að koma fyrir græjunum á stóra sviðið, lagfæra auglýsingar og klára veitingartjaldið. Það má búast við mikilli stemmningu í dag og i kvöld í dalnum enda alltaf gaman svona á endasprettinum. Myndirnar frá gærkveldinu er hægt að skoða hérna.

Deila á facebook