Þjóðhátíð Vestmannaeyja 2007 var sett kl:16:00 í dag í örlitlum gusti í Herjólfsdal en þjóðhátíðarnefnd frestaði setningunni um 2 tíma vegna veðurs. Veðrið er að lagast í eyjum og má búast við fínasta veðri um helgina.
Setningin hófst með því að lúðrasveit Vestmannaeyja spilaði nokkur vel valin lög en því næst tók Jóhann Pétursson formaður ÍBV við og hélt ræðu og setti Þjóðhátíð Vestmannaeyja 2007. Hátíðarræðuna hélt Erna Jóhannesdóttir og eftir það tók Séra Kristján Björnsson við. Mikill fjöldi var samakominn þrátt fyrir örlítinn vind og var stemningin góð.
Annars óskum við öllum gleðilegrar þjóðhátiðar og vonandi að allir skemmti sér sem best um helgina.