Viftan eða Óvitinn
Mjög vel gengur að taka saman í dalnum og er tiltölulega lítið eftir. Til að mynda fór Hofið niður í kvöld og voru þeir félagar ekki nema rúma tvo tíma að koma því frá. En alltaf er það erfitt fyrir tvö gengi að koma sínu úr dalnum.
Það er annarsvegar myllugengið með Jóa P formann í broddi fylkingar, og svo hinsvegar vitinn þar sem Helgi forseti ræður ríkjum. Það verður því gaman að sjá hvor fær skammarverðlaunin í ár, formaðurinn eða forsetinn.