Undirbúningur þjóðhátíðar 2008 að fara á fullt

Þá er undirbúningur fyrir þjóðhátíðina kominn á fulla ferð og byrjað að vinna í að ráða skemmtikrafta og hljómsveitir. Eins og komið hefur fram í fjölmiðlum þá koma hljómsveitirnar Dans á rósum, Tríkot og Logar til með að halda uppi fjörinu á Tjarnarsviðinu öll kvöld hátíðarinnar.
 
Annars virðist sem fólk sé tímalega í ár búið að ákveða að mæta í dalinn því ef marka má smáauglýsingar netmiðla og bæjarblaða þá er mjög mikið auglýst eftir gistirými yfir þjóðhátíðina. Einnig er mikið um auglýsingar hér inná gestabókinni.

Ekki líður svo á löngu að við greinum frá fleiri skemmtikröftum sem koma til með að halda uppi stemmningu í dalnum á þjóðhátíð 2008.



Deila á facebook