Raggi Bjarna og Þorgeir Ástvalds á föstudagskvöldið í Dalnum

Þeir félagar Raggi Bjarna og Þorgeir Ástvalds munu koma fram á kvölddagskrá á föstudagskvöldið á Brekkusviðinu.
 
Raggi og Þorgeir ættu að þekkja þjóðhátíðina vel enda hafa þeir slegið í gegn á Brekkusviðinu síðustu ár. Stemningin í Herjólfsdal hefur verið ógleymanleg þegar Raggi syngur lagið Flottur Jakki og má búast við því að Jakkinn fái að fljóta með Ragga í Dallinn í ár.

Gul hanska hljómsveitin Dr.Spock mun svo spila á Brekkusviðinu en þeir slógu í gegn á forkeppni Eurovision í vetur og einnig útsetti hljómsveitin ásamt öðrum lagið Lífið er yndisslegt og fluttu í Kastljósi og var sú útsetning með þeim frumlegri á því frábæra þjóðhátíðarlagi.

Heildardagskrá Þjóðhátíðar 2008 verður birt í heild sinni innan tíðar
Deila á facebook