Á föstudeginum verður barnadagskrá á Brekkusviðinu og að vanda er það hljómsveitin Dans á rósum sem sum halda utanum söngvakeppni barna einnig verður Brúðubílinn á staðnum og Fimleikafélagið Rán mun sýna fimleika.
Á laugardeginum verður barnadagskrá á Tjarnarsviði og þar verður Brúðubílinn með sýningu, ball verður fyrri börnin og Örn Árnason og félagar verða með skemmtiatriði fyrir krakkana.
Á sunnudeginum verður barnaball á Tjarnarsviðinu og svipuð dagskrá og á laugardeginum.
Ekki er búið að loka fyrir það að atriðum verði bætt inn í barnadagskránna.
Heildardagskrá Þjóðhátíðar verður birt á næstu dögum.