Hljómsveitin Í svörtum fötum kemur til með að skemmta landanum í Herjólfsdal á þjóðhátíðinni í ár. Jónsi og félagar eru þekktir fyrir mikla stemmningu og ekki hvað síst á þjóðhátíðinni.
Auk þeirra svartklæddu eru það Á móti sól og Land og synir sem sjá um ballstemninguna á Brekkusviðinu í dalnum þetta árið.