Húkkaraball á höfuðborgarsvæðinu

<p> </p><p>Eyjahljómsveitirnar Dans á rósum, Tríkot og Logar munu allar standa í eldlínunni næstu helgi og kynna þjóðhátíð á fastalandinu en allar þessar sveitir munu spila á þjóðhátíðinni í ár.</p>
 
Á laugardagskvöldið á Players í Kópavogi munu Tríkot, Logar
og Árni Johnsen halda uppi fjörinu, og í Vélsmiðjunni á Akureyri munu Dans á
rósum leika, svo flestir ættu að geta upplifað Eyjastemningu eins og hún gerist
best, hvort sem er í höfuðborginni eða í höfuðstað norðurlands.
Deila á facebook