Brúðubíllinn, Örn Árna og Björgvin Franz skemmta

Dagskrá Þjóðhátíðar er öll að verða klár. Stór hluti af henni er barnaakemmtun sem verður öflugri nú en oft áður. Brúðubíllinn vinsæli mætir og skemmtir yngstu kynslóðinni ásamt því sem Björgvin Franz og Jóhann mæta á Tjarnarsviðið og skemmta. Einnig mætir Örn Árnason með ferskan grínpakka þar sem hláturtaugarnar verða hristar og ekki er útilokað að sumir brandararnir verði ekki síður til að kítla fullorðna fólkið.
 
Söngvakeppni barna verður á sínum stað sem hefur verið vinsæll þáttur í barnaskemmtun mörg ár. Haldið verður sérstakt barnaball sem verður haldið líklega á Tjarnarsviðinu en frekari fréttir af barnaskemmtun kemur síðar.
Deila á facebook