Þá er það staðfest gott fólk! Það verður mjög stór hátíð í ár!!!
Nú þegar er uppselt, ég endurtek, uppselt í Herjólf fimmtudaginn 29. júlí og föstudaginn 30.júlí. Hvort um sig eru 5 ferðir frá Landeyjarhöfn.
Þegar Dalurinn.is hafði samband við miðasölu Herjólfs(481-2800) þá höfðu bókanir gengið betur en elstu menn muna. Nú þegar fjölgað hefur verið um ferðir þá er strax uppselt frá Landeyjarhöfn með öllum 5 ferðunum bæði fimmtudag og föstudag. Einnig er uppselt á mánudag og þriðjudag frá Eyjum upp í Landeyjarhöfn. Slíkar bókanir hafa aldrei verið svo miklar m.v. flutningsgetu svo löngu fyrir hátíð og verður því um met þjóðhátíð að ræða ef þetta gengur eftir. Athugið að skipið tekur rúmlega 400 manns í ferð sem gerir um 2.000 manns á einum degi. Þá er eftir að telja flug frá bakkaflugvelli, Reykjavíkurflugvelli og þeim fjölda sem fer með skipinu alla vikuna fyrir hátíðina.