Dope DOD á Þjóðhátíð í Eyjum 2012

Hollenska stór hljómsveitin "Dope DOD" hefur staðfest komu sína á Þjóðhátíð í Eyjum 2012. Um er að ræða eina fremstu rapphljómsveitina í dag. Hljómsveitin stökk uppá stjörnuhimininn með laginu "What happend" en lagið hefur ná gríðarlegum vinsældum um heim allann. Bæði þar sem stíll þeirra er algjörlega nýr og frumlegur. Þeir hafa gert allt vitlaust vestanhafs og stefna nú til Íslands eftir hreint ótrúlegt tónleikaferðalag um Evrópu. Þess má geta að Dope DOD hefur einnig verið á tónleikaferðalagi með einni stærstu rokksveit bandaríkjana "Limp Bizkit"

 
 
  Doper DOD er  Íslendingum að góðu kunn því þeir komu til landsins í  Október s.l og spiluðu á iceland airwaves hátíðnni.  Þeir gjörsamlega trylltu lýðinn og er mál manna að þeir hafi algerlega stolið senunni í  fyrra.  Það er þvi með stolti sem að þjóðhátíðarnefnd  tilkynnir komu þeirra.   Í síðustu viku var tilkynnt um komu stórstjörnunnar  Ronan Keating  og enn má búast við að bætist í flóru heimsþekktra listamanna á Þjóðhátíð 2012.  Það er því um að gera að fylgjast vel með  á næstu vikum.  

    Miðasala er hafin hér á ww.dalurinn.is  Við hvetjum fólk til að tryggja sér miða í tíma. 
Deila á facebook