Þann 28. júní síðast liðinn ákváðu grasrótar hreyfing í Vestmannaeyjum og Þjóðhátíðarnefnd ÍBV að stofna forvarnahóp ÍBV. Hópurinn hefur fengið það hlutverk að standa fyrir sérstöku átaksverkefni gegn kynferðisofbeldi og verður það verkefni áberandi á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum nú í byrjun ágúst.
Það er einróma mat forvarnarhóps ÍBV að mikilvægt sé að efla forvarnir á þessu sviði enda sé það forgangsverkefni að koma í veg fyrir að ofbeldið eigi sér yfirleitt stað. Markmið hópsins er því fyrst og fremst að vekja athygli á málefninu á sýnilegan hátt því málefnið snerti alla gesti hátíðarinnar. Kynferðisofbeldi er ekki liður í dagskrá Þjóðhátíðar í Vestmannaeyjum og verður aldrei liðið.
Forvarnahópur ÍBV mun boða til blaðamannafundar í næstu viku þar sem verkefnið verður kynnt og formlega sett af stað.