Vissir þú að...

 
 
VISSIR ÞÚ AÐ…

• ... á vegum þjóðhátíðarnefndar eru um 100 gæslumenn að störfum þegar álagið er mest.
• ... í þeim hópi eru 3 bráðatæknar og 3 neyðarflutningamenn sem hafa til umráða 2 fullbúna sjúkrabíla.
• ... sjúkraflutningamaður er alltaf reiðubúinn á sérútbúnu sexhjóli með börum.
• ... í gæsluliði Þjóðhátíðarnefndar undanfarin ár hafa verið um 14 lögreglumenn og 2 hjúkrunarfræðingar.
• ... læknir er á vöktum allar nætur í Herjólfsdal.
• ... sjúkraskýli, þar sem læknisþjónusta er veitt, stendur 233 metra frá Brekkusviðinu.
• ...yfirmaður sálgæslu á Þjóðhátíð er doktor í sálfræði.
• ... í Herjólfsdal eru rúmlega 10 eftirlitsmyndavélar sem vakta svæðið 24 tíma á sólarhring og geyma upptökur.
Deila á facebook