· Það flýtir fyrir allri afgreiðslu að koma með miðann útprentaðan.
· Fyrir öll vörukaup á dalurinn.is gildir eitt og sama strikamerkið fyrir ferðirnar þínar í ferjuna og fyrir armbandið þitt í Dalinn.
· Frá hádegi á fimmtudag fram á föstudagskvöld verður einnig hægt að fá armböndin sín á Herjólfsbryggjunni.
· Við hvetjum fólk til þess að nýta sér ferðir Strætó til og frá Landeyjahöfn því að lítið er af bílastæðum í Landeyjahöfn. Þá er hægt að njóta ferðarinnar og fá akstur alveg upp að afgreiðsluhúsinu.
· Gott er að taka með sér: Hlý föt, gönguskó, sólgleraugu, regnföt, sundföt og góða skapið.
· Á Þjóðhátíð í Eyjum er hvorki kynferðis ofbeldi né annað ofbeldi liðið.
· Sá sem verður uppvís af því að brjóta af sér á hátíðarsvæðinu verður umsvifalaust vikið af svæðinu og armbandið gert upptækt.
· Farþegar Herjólfs eru hvattir til að leggja tímanlega af stað til Landeyjahafnar og gefa sér góðan tíma í akstur. Gott er að fara úr borginni 5 tímum fyrir brottför.
· Allir brottfararmiðar verða skannaðir inn og mikilvægt að passa vel upp á miðana.
· Á mánudeginum er mikill álagstími og hvetjum við fólk til að bíða rólegt þar til þeirra ferð nálgast.
· Við minnum að lokum alla þá sem eru á ferðinni á að spenna beltin og eftir einn ei aki neinn.