Forsalan hefst á miðvikudaginn

 22. febrúar kl. 9:00 hefjum við forsölu á Þjóðhátíð 2017. Eins og undanfarin ár þá munum við selja miða bæði í dalinn og í Herjólf á vefsíðunni okkar dalurinn.is
 
Hægt er að nálgast frekari upplýsingar um hátíðina hér. Í ár verða allir miðarnir rafrænir og fá viðskipavinir okkar þá senda í tölvupósti við vörukaup. Mikilvægt er að passa vel upp á miðann því týndur miði er glatað fé.
 
 
 Í dag voru fyrstu tónlistamennirnri kynntir til leiks en það eru þau Emmsjé Gauti, Friðrik Dór og Hildur. 
 
Sjáumst í Herjólfsdal 4. ágúst 
Deila á facebook