Minnispunktar fyrir Þjóðhátíð 2018

 
 
 

·       Það flýtir fyrir allri afgreiðslu að koma með miðann útprentaðan.

·       Fyrir öll vörukaup á dalurinn.is gildir eitt og sama strikamerkið fyrir ferðirnar þínar í ferjuna og fyrir armbandið þitt í Dalinn.

           Ef bókun hefur verið breytt á einhvern hátt af starfsmönnum dalurinn.is þá er nauðsynlegt að allir miðar í pöntuninni sem var breytt sé prentaðir út aftur.

·       Frá hádegi á fimmtudag fram á föstudagskvöld verður einnig hægt að fá armböndin sín á Herjólfsbryggjunni.

·       Við hvetjum fólk til þess að nýta sér ferðir Strætó til og frá Landeyjahöfn því að lítið er af bílastæðum í Landeyjahöfn. Þá er hægt að njóta ferðarinnar og fá akstur alveg upp að afgreiðsluhúsinu.

·       Gott er að taka með sér: Hlý föt, gönguskó, sólgleraugu, regnföt, sundföt og góða skapið.

·       Á Þjóðhátíð í Eyjum er hvorki kynferðis ofbeldi né annað ofbeldi liðið.

·       Sá sem verður uppvís af því að brjóta af sér á hátíðarsvæðinu verður umsvifalaust vikið af svæðinu og armbandið gert upptækt.

·       Farþegar Herjólfs eru hvattir til að leggja tímanlega af stað til Landeyjahafnar og gefa sér góðan tíma í akstur. Gott er að fara úr borginni 5 tímum fyrir brottför.

·       Allir brottfararmiðar verða skannaðir inn og mikilvægt að passa vel upp á miðana.

·       Á mánudeginum er mikill álagstími og hvetjum við fólk til að bíða rólegt þar til þeirra ferð nálgast.

·       Við minnum að lokum alla þá sem eru á ferðinni á að spenna beltin og eftir einn ei aki neinn

 

 

Deila á facebook