Þá skaltu lesa þetta.
Það styttist í Þjóðhátíð og til að forðast biðraðir við hliðið þá viljum við benda þeim sem fluttu miðana sína til 2022 á eftirfarandi:
- Ef þú ert ekki viss hvort þú hafir flutt miðann þinn til 2022 þá getur þú skráð þig inn á mitt svæði á dalurinn.is með rafrænum skilríkjum, þar getur þú séð hvaða afstöðu þú tókst til miðakaupa
- Þeir sem fluttu miðann sinn til 2022 eiga að hafa fengið senda nýja miða frá tix.is í tölvupósti frá 28. apríl sl.
- Ef þú hefur flutt miðann þinn til 2022 og ekki fengið nýjan miða sendan frá tix.is þá þarftu að senda póst á [email protected]
- Miði frá 2021 sem er inn á mitt svæði á dalurinn.is gildir EKKI á Þjóðhátíð
- Vertu búin/n að prenta út miðann þinn eða hlaða niður í símann áður en þú mætir á svæðið
Við hvetjum Þjóðhátíðargesti til að sækja armböndin sín sem fyrst!
Opið verður á Básaskersbryggju fimmtudaginn 28. júlí kl. 12-22 fyrir þá sem hafa keypt miða og vilja sækja armband
Innrukkun í Herjólfsdal hefst föstudaginn 29. júlí kl. 10:00.